Search
Search

Imilab C20 Pro öryggismyndavél

8.990 kr.

  • 2K, 3MP upplausn. F2.1 ljósop
  • IR nætursjón, hreyfiskynjari, hljóðnemi og hátalari fyrir tvíhliða samtöl
  • Nemur óvenjuleg hljóð og sendir tilkynningar, t.d við barnagrátur
  • Hægt að snúa 360° til hliðar og færa linsu upp og niður
  • Hægt að vista upptökur á allt að 64GB SD korti eða skýjaþjónustu
  • Tengist við Imilab Home appið

Á lager

Vörunúmer: 311340

360° öryggismyndavél fyrir heimili, skrifstofur og bústaði

2K upplausn | 3MP | 360° hreyfigeta | Infrarauð nætursjón | Nemur hljóð eins og barnagrátur | Tvíhliða samtöl

Helstu eiginleikar

2K upplausn

Nemur hreyfingu

Nemur óregluleg hljóð

360° hreyfing

Tvíhliða samtöl

Há upplausn sýnir meiri og skarpari smáatriði

Imilab C20 Pro öryggismyndavélin er með 3MP linsu sem skilar 2K upplausn. Það tryggir að fleiri smáatriði sjáist og allt verður þeim mun skarpara. Linsan minnkar einnig truflun frá ljósi og upptakan verður þar af leiðandi líflíkari. Í gegnum Imilab Home appið er hægt að snúa myndavélinn 360° til hliðanna og einnig upp og niður svo hægt er að vakta allt rýmið.

Sofðu rótt með öryggið á oddinum

C20 Pro er með 850nm infrarauðri nætursjón. Vélin sér einstaklega vel í lágum birtuskilyrðum og gefur ekki frá sér ljós sem gæti truflað værann svefn.

Öflug gervigreind

C20 Pro er með öflugri gervigreind. Gervigreindin greinir hreyfingar og mannaferðir og senda tilkynningar í síma. Gervigreindin sér einnig til þess að sía út óþarfa tilkynningar. C20 Pro getur einnig sent tilkynningar þegar óeðlilegt hljóð greinist t.d barnagrátur eða glas að brotna.

Tvíhliða samtöl í rauntíma

Í gegnum Imilab Home appinu er hægt að hefja tvíhliða samtal í rauntíma þökk sé innbyggðum míkrófón og hátalara í myndavélinni. Myndavélin síar út óþarfa læti og betrumbætir raddir fyrir skýrari samtöl.

Staðbundin geymsla + skýjageymsla = meira öryggi

Hægt er að setja SD kort í myndavélina sem vistar upptökur þegar hreyfing er skynjuð eða látið hana taka upp á ákveðnum tímum, Myndavélin tekur allt að 64GB SD kort. Í gegnum Imilab Home appið er hægt að fá áskrift að skýjaþjónustu sem geymir upptökur.

Skýjageymsla

Geymir upptökur á skýinu í gegnum áskrift

SD kort

Staðbundið SD kort geymir allt að 144 klukkustundir af upptöku áður en hún yfirskrifar elstu upptökurnar

Upp eða niður, þitt er valið!

Styður hefðbundna og öfuga festingu. Myndavélina er hægt að hengja í loft eða einfaldlega leyfa henni að sitja á borði. Myndavélinni fylgir festing sem er auðvelt að skrúfa í loft. Til að snúa myndinni við þarf bara að snúa skjánum í stillingum myndavélarinnar.

Einföld uppsetning í þremur skrefum

Náðu í Imilab Home appið og stofnaðu aðgang/skráðu þig inn

Tengdu myndavélina í rafmagn og bíddu eftir að það komi appelsínugult ljós hjá linsunni

Ýttu á plúsinn (+) í efra hægra horninu og leitaðu að Imilab C20 Pro, fylgdu leiðbeiningum í appinu og vélin verður tilbúin til notkunar