Lýsing
Skýr mynd sama hvort það sé nótt eða dagur
A800S notar öfluga myndflögu sem að er sérstaklega hönnuð fyrir upptökur í lítilli birtu. Það skiptir því litlu máli hver birtuskilyrðin eru, þú færð alltaf skýra mynd.


Innbyggt GPS
Með innbyggðu GPS sérðu upplýsingar um staðsetningu og hraða. Að auki er hægt að sjá ferðina í heild sinni á korti eftir á.
4K upplausn
A800S tekur upp í 4K upplausn og er með 140 gráðu víðlinsu sem auðveldar manni að sjá smáatriði eins og númeraplötur ef að maður lendir í óhappi.


Stöðug upptaka
A800S styður stöðuga uppptöku sem að þýðir að hún tekur upp þangað til að hún er full og skrifar sjálfkrafa yfir elstu upptökuna. Einnig er hægt að vista upptökur til að ekki sé skrifað yfir þær. Með stuðning fyrir allt að 256GB Micro SD kort getur vélin geymt marga daga í minninu.