Search
Search

Aqara Wireless Switch Mini

4.990 kr.

Á lager

Vörunúmer: S1057

Wireless Switch Mini frá Aqara er snjall og stílhreinn rofi sem er hægt að forrita til að gera allt frá því að einfaldlega kveikja ljós yfir í að nota hann sem dyrabjöllu. Rofinn getur líka verið öryggishnappur fyrir heimilið þegar hann er paraður með Aqara Hub. Það virkar þannig að þegar það er virkt og það er ýtt á hnappinn þá fer tiltynning í símana sem eru tengdir við hann og það kemur hljóð úr Aqara Hub.

Rofinn virkar þannig að á honum eru þrjár megin aðgerðir og tvær auka:

Eitt klikk – Þetta virkar svipað og flestir rofar í heiminum en þú getur stillt Aqara Single rocker til að gera hvað sem þér dettur í hug ef þú ýtir á hann einu sinni.

Tvöfalt Klikk – Öðruvísi en með flesta aðra rofa þá er líka hægt að ýta tvisvar á Wireless Switch Mini og þá framkvæmir hann allt aðra beiðni.

Halda inni – Það er líka hægt að halda inni rofanum og þá virkjast þriðja beiðnin.

Öryggishnappur – Öðruvísi með Wireless Switch Mini og Single Rocker þá getur sá fyrrnefndi líka verið öryggishnappur fyrir heimilið.

Dyrabjalla – Aqara Wireless Switch Mini getur líka verið dyrabjalla.

Sem dæmi þá væri hægt að stilla rofann þannig að ef þú ýtir einu sinni á rofann þá fara ljósin á heimilinu í gang og kaffivélin byrjar að hella upp á. Svo ef þú ýtir tvisvar sinnum þá slekkur þú ljósin. Svo ef þú heldur rofanum inni þá fer öryggiskerfið í gang og þú ferð áhyggjulaus í vinnuna.

 Tæknilegar upplýsingar:

 Model   WXKG11LM
 Dimensions

45 × 45 × 12 mm

 Operating Humidity:   0% – 95%RH, non-condensing.
 Operating Temperature  -10℃– +55°C
 Wireless Protocol  Zigbee
 Battery  R2032
 Battery life  2 years