Lýsing
FIMI X8 SE er öflugur lítill dróni sem getur tekið myndbönd í 4K upplausn. Dróninn er sambrjótanlegur og passar í hvaða tösku sem er!
FIMI X8 SE gerir þér auðvelt fyrir að búa til fullt af fallegu og einstöku mynd- og myndbandsefni.
Dróninn er stútfullur af sniðugum eiginleikum líkt og sjálfvirkri lendingu og “return to home” svo eitthvað sé nefnt.
Fjarstýring sem er hönnuð með þægindi og betra grip í huga. Hægt er að fjarlægja stýripinnana til að auðveldara sé að pakka henni saman.
Fjarstýringin virkar með öllum stærðum og gerðum snjallsíma og virkar meira að segja með sumum spjaldtölvum, eins og iPad Mini.
FIMI X8 SE er með 8km drægni og er uppgefinn flugtími um 35 mínútur en það telst mjög gott fyrir dróna sem getur skotið myndbönd í 4K upplausn.
Hann er líka með “Night Shot” möguleika sem bætir gæði í minni birtuskilyrðum.