- Samanbrjótanleg vatnsróðravél
- Skjár sýnir hraða, kaloríur, lengd o.fl.
- Hámarksþyngd 120kg
- 300N stöðug mótstaða





Kingsmith Rowing Machine vatnsróðravél
99.990 kr.
Á lager
Lýsing
Kingsmith samanbrjótanleg vatnsróðravél
Brýst saman á milli notkunar
Róðravélin pakkast snyrtilega saman þegar hún er ekki í notkun þannig að hún tekur einstaklega lítið pláss þegar hún er ekki í notkun.


Róaðu þig!
Róðravélin veitir góðann mótbyr og er einstaklega gott og heilandi æfingatæki. Á meðan þú tekur á því heyrir þú í róandi hringlhljóði vatnsins. Á tækinu er LCD skjár sem sýnir síðan allt það helsta; hraða, kaloríufjölda, fjölda og hraða róana, tíma æfingarinnar og lengd sem þú hefur róið. Hægt er að tengja róðravélina við Kingsmith appið og fá þar líka yfirlit yfir æfingarnar.

Skjáhaldari
Fylgstu með uppáhalds sjónvarpsþáttunum, podcastinu eða æfingaprógrammi á skjánum þínum með innbyggðum skjáhaldara.

Hannað með þægindi í fyrirrúmi
Sætið er einstaklega þægilegt og hentugt fyrir setur til lengri tíma

Ekki missa róðinn
Handfangið dregur í sig svita og er gert til að endast. Gripið helst gott í gegnum æfinguna.

Breytileg fótfesting
Hvort sem þú ert í skóstærð 28 eða 48 þá er fótfestingin breytileg og hentar öllum fótum.
Tengdar vörur
- 12.490 kr.
Aqara Hub er stjórnstöð fyrir snjallheimilið sem tengist öðrum tækjum í gegnum Zigbee, Aqara fylgihlutir geta þar að leiðandi virkað snurðulaust jafnvel þó að heimanetið þitt sé óstöðugt eða aftengt. Aqara Hub er stjórnstöð sem tengir saman snjallheimilis vörur heimilisins og hjálpar þeim að tala saman. Aqara Hub gerir þér…