Search
Search

Kingsmith WalkingPad X21 göngu- og hlaupabretti

169.990 kr.

  • 0.5 -12km hraði
  • 100kg hámarksþyngd
  • LED skjár sem sýnir tíma, lengd, hraða og kaloríur
  • 1210x460mm æfingaflötur
  • Standur fyrir síma eða spjaldtölvu
  • Innbyggð NFC flaga til að fá upplýsingar beint í símann

Aðeins 1 eftir á lager

Vörunúmer: 713662

Kingsmith X21 göngubretti

Kingsmith göngubrettin er fullkomin leið til þess að auka hreyfinguna, þú getur haft brettið hjá skrifborðinu og tekið nokkur skref á meðan þú svarar nokkrum tölvupóstum eða horfir á uppáhalds sjónvarpsþáttinn þinn. Göngubrettið er samanbrjótanlegt og er því hægt að geyma það þægilega á milli æfinga. Brettið sjálft er breitt og með undirlagi sem styður vel við líkamann á meðan á æfingu stendur.

Innbyggður upplýsingaskjár

Lögð hefur verið sérstök áhersla á fallega og rúmgóða hönnun og passa því Kingsmith göngubrettin vel inn á öll heimili. Hraðinn á brettinu stýrist eftir því hvar þú stígur á það en það er einnig hægt að stilla hraðann með appi í símanum eða með fjarstýringu. Upplýsingar um hraða, lengd, fjölda brenndra kaloría, skref og tímann sem þú hefur labbað eða skokkað birtast svo á stíllegum skjá sem er innbyggður í brettið. Þá er einnig NFC flaga sem tengir þig beint við Kingsmith appið þegar þú setur snjallsímann þinn upp við.

Auðveld geymsla á milli æfinga

Göngubrettið er brotið saman á milli æfinga og minnkar þá geymslupláss þess svo um munar. Þá er hægt að rúlla brettinu undir sófa eða rúm á innbyggðum dekkjum og geyma það á þægilegan hátt þegar það er ekki í notkun.

Þér gæti einnig líkað við…