Lýsing
Lykillinn að öruggu heimili
Eitt mikilvægasta öryggistól nútíma heimilisins er góð og stöðug öryggismyndavél. Mi Home Security Camera 360° 2K heldur áfram góðu gengi forvera sinna en þessar sniðugu litlu öryggisvélar frá Xiaomi halda áfram að toppa sig.
Ein sú besta er orðin ennþá betri
Mi Home Security Camera 360° 2k er nýjasta inni öryggismyndavélin frá Xiaomi. Með ennþá betri upplausn og nýjum eiginleikum.
Með nýjum og endurbættum hreyfiskynjara sem síar út óþarfa hreyfingar og ónáðar þig ekki nema um raunverulega hættu sé að ræða.


Endalausir möguleikar, í allar áttir
Myndavélinni er hægt að snúa 360° í allar áttir, einnig er hægt að draga að myndinni e. zoom. Mi Home Security Camera 360° 2K sendir mynd frá sér úr 108° sjónarhorni.
Tvíhliða símhringingar í rauntíma, innbyggður míkrófónn og hátalari gerir þér kleyft að heyra í fjölskyldumeðlimum hvenær sem þú vilt.
Upp eða niður, þitt er valið
Styður hefðbudna og öfuga festingu. Myndavélina er hægt að hengja í loft eða einfaldlega leyfa henni að sitja á borði.
Myndavélinni fylgir festing sem er auðvelt að skrúfa í loft. Til að snúa myndinni við þarf bara að snúa skjánum í stillingum myndavélarinnar.
