Search
Search

Mi Temperature & Humidity Monitor 2

2.990 kr.

Á lager

Vörunúmer: S1101
Hita- og raka mælirinn frá Xiaomi er bráðsniðug græja inn á heimilið sem hentar sérstaklega vel fyrir fjölskyldufólk með börn og gæludýra eigendur sem vilja passa upp á að hita- og rakastig í húsinu er eins og best verður á kosið.

Mi Temperature & Humidity Monitor 2 er nýr og endurbættur mælir en hann fylgir á eftir Mi Temperature & Humidity Monitor. Helsti munurinn á þessum tveim er sá að Mi Temperature & Humidity Monitor 2 er öðruvísi í laginu og mun fyrirferðarminni en forveri sinn.

Mælirinn sjálfur er lítill, stílhreinn og einfaldur í notkun með LCD skjá. Hægt er að láta hann standa hvar sem er eða líma hann á vegg en mælirinn gengur svo fyrir rafhlöðu (rafhlaða fylgir ekki með).

Hægt er að fylgjast með öllum mælingum í Mi Home snjallforritinu.