Lýsing
Roborock S5 Max
Roborock S5 Max hefur farið sigurför um heiminn og er af mörgun talin vera einn besti ryksugu-robot sem völ er á. Ryksugan hentar sérstaklega vel fyrir stærri heimili og þá sem ætla að notast mikið við moppuna. Roborock S5 Max hefur verið að fá frábæra dóma og þá sérstaklega fyrir endingu og nákvæmni en ryksugan fer auðveldlega með að þrífa 200fm heimili.
Ótrúlega skipulögð

Hún fer þangað sem þú vilt
Roborock S5 Max er með 360° laser skynjara sem snýst 300 sinnum á mínútu sem gerir ryksuguna ákaflega ratvísa og skipulagða. Einnig kortleggur hún rýmin í húsinu þínu af mikilli nákvæmni. Eftir að hún hefur kortlagt rýmið getur þú séð og stjórnað öllum aðgerðum úr Mi Home snjallforritinu en þar er meðal annars hægt að setja bannsvæði fyrir ryksuguna og skipuleggja þrif fram í tímann á öllu rýminu, eða aðeins á ákveðnum svæðum. Einnig er S5 Max með sérstaka stillingu til að koma í veg fyrir að ryksugan moppi teppi og þess háttar og eins og sést í myndbandinu hér að neðan þá er því öllu stjórnað í appinu. Roborock S5 Max er ekki nema 9,65 cm á hæð sem gerir henni kleift að komast undir flest húsgögn heimilisins.