- 4L Vatnstankur
- Dælir allt að 260ml á klst
- Rakatæki án gufustróks
- 34.4dB(A) næturstilling
Lýsing
SmartMi Evaporative Humidifier 2 snjallt rakatæki
- Uppgufun án misturs
- LED upplýsingaskjár
- Snjallstýring úr appi
- 4L vatnstankur
Rakatæki án misturs
Rakatækið frá SmartMi er einstaklega snjallt og sniðugt. Hægt er að tengja rakatækið við Xiaomi Home appið til að stýra því og sjá einnig helstu upplýsingar eins og rakastig og vatnsmagn eftir í tanknum. Það sem gerir þetta rakatæki hinsvegar einstakt er það að það gefur ekki frá sér mistur eða gufustrók þannig það hentar vel fyrir alla, börn með viðkvæm nef, fólk með asthma og öndunarörðugleika og þá sem eiga auðvelt með að næla sér í flensur.


Uppgufun án misturs frá “vatnsfilmum”
SmartMi rakatækið er einstakt á þann hátt að það blæs ekki frá sér mistri eða vatnsgufu eins og hefðbundin rakatæki. Inní tækinu er sívalningslaga vatnsfilmur sem að samsvara rúmlega 2fm² í yfirborðsstærð. Filmurnar snúast, draga í sig vatn úr vatnstanknum og vifta í efri hluta tækisins flýtir uppgufun vatnsins sem að skilar sér í auknum raka án þess að tækið blási út mistri og bleyti umhverfis sig.
4L tankur skilar allt frá 15 klst af raka
SmartMi rakatækið er með stórum 4L vatnstank. Það getur gefið frá sér allt að 260ml af raka á klukkustund og á hæstu stillingu dugar tankurinn í 15 klst.


Auðvelt og þægilegt að fylla á vatnstankinn
Rakaúttakið virkar einnig sem vatnsinntak þegar þarf að fylla á vatnstankinn. Það er einfaldlega hægt að fylla á rakatækið með því að hella vatni í gegnum sigtið. Með því að skoða skjáinn á framanverðu tækinu eða fylgjast með í Xiaomi Home appinu er hægt að sjá hversu mikið vatn er eftir á tanknum.
Sýnir rakastig umhverfisins
Sýnir magn vatns í tanknum
Hægt að stýra rakamagni
Sýnir rakastillingu
Hægt að stilla birtu á skjá
Wi-Fi snjalltenging

Hentugt á öllum tímum dagsins
Á lægstu stillingu er hljóðmagn frá rakatækinu einungis 34.4dB. Þannig getum við sofið vært, í hljóðlátu og fullkomlega röku umhverfi.

Tengdar vörur
- 5.990 kr.
Umbreyttu heimilistækjunum þínum Aqara Smart Plug getur auðveldlega breytt hefðbundnum heimilistækjum í snjalltæki. Fjölmargir snjallar senur og skipanir eru í boði þegar innstungan vinnur með öðrum Aqara snjalltækjum. Fullkomin stjórn með símanum Gleymdirðu að slökkva á viftunni þegar þú fórst að heiman? Með Aqara Home eða Mi Home snjallforritinu…
- 4.990 kr.
Skynjarinn skynjar hitastig, raka og pressu í loftinu. Það þarf enga víra eða snúrur til að setja skynjarann upp heldur tengist hann við stjórnstöð heimilisins (Aqara Hub) og þar að leiðandi við heimanetið. Skynjarinn tengist í gegnum Zigbee. Hægt er að fylgjast með og stjórna aðgerðum í appi og virkar…