- 6,52″ IPS LCD 720×1560
- 8GB/128GB
- MediaTek Dimensity 700
- 5.180 mAh
- Bakteríufráhrindandi efni
Lýsing
Ulefone Armor 12 5G
Leyfðu þér að þora

Öflugt myndavélakerfi
Fjórföld bakmyndavél leyfir þér að fanga hvert og einasta atriði í þínu lífi. 48MP aðalmyndavél sér um að taka glæsilegar myndir, 13MP víðlinsa sér um stærri skot af landslagi, síðan er 2MP aðdráttarlinsa sem opnar á nýja vídd í návígi. 2MP dýptarskynjari fullkomnar svo pakkann og tekur myndirnar þínar á næsta stig

Þynnri, léttari, betri
Þrátt fyrir öflugann harðgerðann snjallsíma með stórri rafhlöðu gefur Ulefone Armor 12 5G ekkert eftir þegar kemur að þægindum notanda. Þyngdin er á við aðra snjallsíma og þykktin tryggir það að síminn fellur vel í hendi.

Varanleg vernd gegn bakteríum
Samsetning efnisins í Ulefone Armor 12 5G tryggir það að bakteríur og önnur heilsukvillavaldandi efni hreinsast 99.9% yfir 24 tíma tímabil. Kross-smit og útbreiðsla sjúkdóma er því stórlega lækkuð.

Handfrjálst FM útvarp
Án þess að þurfa að notast við heyrnartól getur þú hlustað á útvarpið hvar og hvenær sem er. Hátalarar símans eru gríðarlega flottir og öflugir og hámarkshljóð þeirra er uppí 106dB. Hátalarakerfið fór í gegnum stranga prófun til að framkalla sem raunverulegast og flott hljóð og hægt væri.

Sterkbyggður fyrir allar aðstæður
Ulefone Armor 12 5G er hannaður með krefjandi aðstæður í huga. Síminn er vatnsheldur, rykheldur og höggheldur, svo að þú getur unnið áhyggjulaus í hvaða aðstæðum sem er. Ekki láta fjall- eða eyðimerkurgöngu eða göngu yfir læk standa í vegi fyrir þér.

Gerðu allt sem þú vilt á leifturhraða með Ulefone Armor 12 5G
Upplifðu hraða sem aldrei fyrr með öflugum MediaTek Dimensity 700 5G örgjörva. Örgjörvinn tryggir góð afköst en notar á sama tíma lítið af rafhlöðunni, þannig færð þú góðan hraða og langan notkunartíma á einni hleðslu.

6.52″ vatnsdropaskjár
Með 6.52″ skjá sem nær út í alla kanta með 20:9 skjáhlutföllum færð þú fullkomna sjónræna innlifun úr öllum áttum. Upplifðu myndbönd, leiki og vídeósamtöl á nýjan og betri hátt.

8GB vinnsluminni + 128GB geymslupláss
Með 8GB vinnsluminni getur Ulefone Armor 12 5G tæklað mörg verkefni í einu, streymt myndböndum og spilað jafnvel kröfuhörðustu leikina. Síðan hefur þú allt það frelsi sem þú vilt með 128GB geymsluplássi til þess að geyma myndir, myndbönd, leiki og mikilvæg skjöl. Ef það dugar ekki til er hægt að bæta við SD korti allt að 1TB í stærð.

Ekki fleiri flæktar snúrur
Ulefone Armor 12 5G styður 15W þráðlausa hleðslu og 18W snúruhleðslu. Með 5180mAh rafhlöðu endist síminn þér svo auðveldlega í gegnum daginn