- 6.52″ Waterdrop HD+ IPS skjár
- 8+5GB/128GB minni
- MediaTek Helio G99 örgjörvi
- 5,180 mAh rafhlaða
- 18W hraðhleðsla og 15W þráðlaus hleðsla
- 106dB tvöfaldir hátalarar
Lýsing
Ulefone Armor 12S
Helio G99 | 50MP aðalmyndavél | Allt að 13GB RAM

Þynnri, léttari, betri
Þrátt fyrir öflugann harðgerðann snjallsíma með stórri rafhlöðu gefur Ulefone Armor 12S ekkert eftir þegar kemur að þægindum notanda. Þyngdin er á við aðra snjallsíma og þykktin tryggir það að síminn fellur vel í hendi.

IP68 og IP69K vottun
Ulefone símarnir eru sterkbyggðir símar sem þola mikið meira en hinn almenni snjallsími. Ulefone Armor 12S er þar engin undantekning en með IP68 og IP69K vottunum stenst síminn strangar gæðakröfur um vörn gegn vatni, ryki og drullu, háu hitastigi og fleiri krefjandi aðstæðum.
30 mín
1.5m vatnsvernd

1.5 metrar
Höggheldur

24 tímar
Rykvarin

50MP fjórföld aðalmyndavél
Ulefone Armor 12S er með einstaklega góðu myndavélakerfi en á bakhlið símans eru fjórar myndavélar sem að leiða saman hesta sína til að skila frábærum gæðum á bæði myndum og myndböndum. Aðalmyndavélin er 50MP og til aðstoðar henni er 8MP víðlinsa, 2MP Macro linsa og dýptarskynjari.
Fleiri sniðugir eiginleikar

2MP Macro linsa
Macro myndavélin getur fangað minnstu smáatriði á minnstu viðfangsefnunum. Uppgötvaðu nýja vídd og sjáðu smáheiminn.


16MP selfie myndavél
Fangaðu fegurðina þína með einstaklega skarpri myndavél. Þú átt skilið að líta jafn vel út á myndum og þú gerir í alvörunni.
MediaTek Helio G99
Upplifðu hraða sem aldrei fyrr með öflugum MediaTek Helio G99 örgjörva. Örgjörvinn tryggir góð afköst en notar á sama tíma lítið af rafhlöðunni, þannig færð þú góðan hraða og langan notkunartíma á einni hleðslu.


Toppaðu þig með 13GB vinnsluminni og risageymsluplássi
Ulefone Armor 12S er með 8GB vinnsluminni, ef að síminn finnur að hann þurfi að nota meira getur hann fengið lánað allt að 5GB frá geymsluminni símans og verið þar með 13GB vinnsluminni. Geymslupláss símans er 128GB en hægt er að stækka það uppí 1TB með microSD korti
Finndu fyrir hljóðinu
Tvöfaldir hátalarar sem eru fínstilltir af SKTune V5 reikniritinu gefa þér einstaka innlifun í hljóðheiminum. Hvort sem það er tónlist, bíómyndir eða símtöl, þá er hljóðið einstaklega skírt og flott og hámarkshljóð sem hátalarnir geta gefið frá sér er 106dB.
