Lýsing
Armor 8 Pro
Besti útivistar- og vinnufélaginn þinn
IP68/IP69K | 16MP þreföld myndavél
Android 11 | 8GB + 128GB
Vatnsheldur, höggheldur og rykvarinn
Ulefone Armor 8 Pro er vottaður með IP68/IP69K staðlinum. Hann þolir að lenda í vatni í stuttan tíma og þolir högg úr allt að 1.2 metra hæð. Ulefone Armor 8 Pro er tilvalið tæki til að þola hinar ýmsu aðstæður, mikinn raka, rykugt umhverfi, mikinn hita og sambærilegar aðstæður án þess að málamiðla frammistöðu.
Ulefone Armor 8 Pro kemur með glæsilegum 6.1 tommu vatnsdropaskjá. Myndbönd og leikir lifna við á þessum glæsilega skjá. Skjáglerið er einstaklega sterkt og getur verndað gegn óhöppum eins og að detta í gólf eða rispast.
Forritanlegur aðgerðarhnappur
Á Ulefone Armor 8 Pro er takki á vinstri hlið sem er hægt að forrita að vild. Hægt er að velja úr 6 sniðugum flýtiaðgerðum eða opna ákveðið app.
Skapaðu þitt meistaraverk
Ulefone Armor 8 Pro er með þrefaldt myndavélakerfi. Aðalmyndavélin er 16MP, undirmyndavélin er 2MP og síðast en ekki síst er 5MP aðdráttarlinsa. Með samvinnu þriggja myndavéla er er hægt að taka flottar myndir í háskerpu. Selfie myndavélin er 8MP og með hjálp hennar er hægt að aflæsa símanum með því einfaldlega að horfa á skjáinn. Á hægri hlið símans er fingrafaraskanni sem er hægt að nota til að aflæsa símanum.
Alltaf tilbúinn
Ulefone Armor 8 Pro er heldur betur til í slaginn á hverri stundu. Stór 5.580mAh rafhlaða dugar þér auðveldlega út daginn og meira til. Síminn styður 15W hraðhleðslu svo að hleðslutíminn er þeim mun fljótari.