Search
Search

Ulefone Power Armor 13 128GB 4G vinnusími

69.990 kr.

  • 6,81″ IPS LCD 1080×2400 skjár
  • 8GB/128GB minni
  • Mediatek Helio G95 örgjörvi
  • 13.200mAh rafhlaða
  • Tengi fyrir röramyndavél

Aðeins 2 eftir á lager

Vörunúmer: 735151

Fangaðu fegurðina

Öflugt 48MP fjórfalt myndavélakerfi

Fjórföld bakmyndavél leyfir þér að fanga hvert og einasta atriði í þínu lífi. 48MP aðalmyndavél sér um að taka glæsilegar myndir, 8MP víðlinsa sér um stærri skot af landslagi, síðan er 2MP aðdráttarlinsa sem opnar á nýja vídd í návígi. 2MP dýptarskynjari fullkomnar svo pakkann og tekur myndirnar þínar á næsta stig

Mælingar hafa aldrei verið jafn auðveldar

Innfrarauð lengdarmæling

Innbygðir innfrarauðir geislar mæla á nákvæmann hátt lengd, flatarmál, rúmmál og Pýþagoras! Hárnákvæmar mælingar bylta því hvernig þú mælir

Bættu við Endoscope

Hægt er að bæta við holsjármyndavél við Ulefone Power Armor 13 til þess að geta séð á svæði sem er erfitt að komast að, eins og pípur, bílvélar, lofthreinsitæki og margt fleira.

Handfrjálst FM útvarp

Án þess að þurfa að notast við heyrnartól getur þú hlustað á útvarpið hvar og hvenær sem er. 

Sterkbyggður fyrir allar aðstæður

Ulefone Power Armor 13 er hannaður með krefjandi aðstæður í huga. Síminn er vatnsheldur, rykheldur og höggheldur, svo að þú getur unnið áhyggjulaus í hvaða aðstæðum sem er. Ekki láta fjall- eða eyðimerkurgöngu eða göngu yfir læk standa í vegi fyrir þér.

6.81″ FHD+ skjár

Með 6.81″ skjá sem nær vel út í alla kanta með 20:9 skjáhlutföllum færð þú fullkomna sjónræna innlifun úr öllum áttum. Upplifðu myndbönd, leiki og vídeósamtöl á nýjan og betri hátt. 

Gerðu allt sem þú vilt á leifturhraða með Ulefone Power Armor 13

Upplifðu hraða sem aldrei fyrr með öflugum MediaTek Helio G95 örgjörva. Örgjörvinn hefur að geyma tvo kröftuga Arm Cortex-A76 kjarna sem klukka uppí 2.05GHz, með sex Cortex-A55 sparsama kjarna. Þetta tryggir góð afköst en notar á sama tíma lítið af rafhlöðunni.

8GB vinnsluminni + 128GB geymslupláss

Með 8GB vinnsluminni getur Ulefone Power Armor 13 tæklað mörg verkefni í einu, streymt myndböndum og spilað jafnvel kröfuhörðustu leikina. Síðan hefur þú allt það frelsi sem þú vilt með 128GB geymsluplássi til þess að geyma myndir, myndbönd, leiki og mikilvæg skjöl. Ef það dugar ekki til er hægt að bæta við SD korti allt að 1TB í stærð.

Ekki fleiri flæktar snúrur

Ulefone Power Armor 13 styður 15W þráðlausa hleðslu og 33W snúruhleðslu. Með 13200mAh rafhlöðu endist síminn þér svo í allt að 5 daga. Ef þörf krefur virkar síminn sem þráðlaus hleðslubanki, með allt að 5W þráðlausa hleðslu út í önnur tæki.