Xiaomi TV Q1E 55″ snjallsjónvarp

Ekki til á lager

149.990 kr.

  • 55″ QLED
  • 4K upplausn
  • 60Hz MEMC
  • 3x HDMI tengi

Orkuflokkur
Vöruupplýsingablað

Ekki til á lager

Fá tölvupóst þegar vara kemur á lager

Lýsing

TV Q1E 55″

Life in quantum clarity

Breitt litasvið QLED sjónvarpa gefur litríkari og skarpari myndir

Xiaomi Q1E 55″ er með QLED skjá með 1.07 milljarði lita og 97% DCI-P3 stuðull tryggir einstök litagæði

Hefðbundið LED sjónvarp

Xiaomi QLED sjónvarp

4K Ultra HD fyrir ótrúleg myndgæði

Hin ofurskarpa 4K upplausn tryggir fjórum sinnum skýrari mynd en hin algenga FHD upplausn og gerir upplifunina af Xiaomi TV Q1E 55″ einstaka.

FHD sjónvarp

UHD sjónvarp

Djúp birtuskil og leiftrandi litir

Xiaomi TV Q1E 55″ styður Dolby Vision® og HDR 10+ sem sér til þess að birtuskilin og litasviðið séu óaðfinnanleg óháð myndefninu

MEMC tryggir ljúfa sjónræna upplifun

MEMC tæknin sem notuð er bætir tærleika dýnamískra mynda til muna og hjálpar til við að koma í veg fyrir að hraðar myndir afmyndist. Fáðu mýkt í áhorfsupplifunina þegar þú horfir á íþróttir, hasarmyndir eða spilar leiki.

Án MEMC

Með MEMC

Hágæða rammalaus hönnun

Rammalausa hönnunin skilar hærra “screen-to-body” hlutfalli en áður.  Þegar kveikt er á sjónvarpinu truflar ramminn lítið sem ekkert og er sjónræn upplifun því hreinni og notalegri.

Nútíma málmumgjörð

Ramminn og standurinn eru úr málmi og flæða saman í eitt til að búa til glæsilega og nútímalega hönnun.  Sjónvarpið eitt og sér gæti virkað sem listaverk á heimilinu.

Android TV™ 10
Uppgötvaðu 400.000+ kvikmyndir og þætti frá öllum uppáhaldsforritunum þínum. Fáðu 7000+ forrit frá Google play. Spilaðu tónlist og leiki með því að kasta því úr hvaða tæki sem er og fleira.

Stýrðu sjónvarpinu með röddinni

Lífið er einfalt með Xiaomi TV Q1E 55”. Notaðu röddina þína til að búa til hið fullkomna umhverfi og stjórna snjalltækjum á heimilinu.

360° Bluetooth fjarstýring

Takkarnir eru hannaðir með notendur í huga. Þú getur stjórnað sjónvarpinu frá hvaða sjónarhorni sem þú velur. Losaðu þig við flækjuna með aðeins einum hnapp til að heimsækja Netflix og Prime Video.

Streymdu því sem þú vilt úr símanum, spjaldtölvunni eða fartölvunni þinni.

Innbyggt Chromecast™ og Miracast gerir þér kleift að kasta efni úr símanum þínum beint upp á sjónvarpið.

Hljómgæði fram úr væntingum

Innan nýuppgerða 6-hátalara kerfisins er hámarksafl eins hátalara allt að 15W. Það styður Dolby Audio + DTS og býður upp á stórgóða upplifun.

Öflugur fjagra kjarna örgjörvi

Fjagra kjarna Cortex-A55 örgjörvinn og 2GB vinnsluminni + 32GB ROM gera alla notkun á sjónvarpinu hraðvirka og bjóða upp á notkun ýmissa smáforrita sem gera það einfaldara að njóta efnis frá ýmsum miðlum.

    Þér gæti einnig líkað við…

    • 49.990 kr.
      • 3.1 rása stereo hljóðstöng
      • Dolby Audio & DTS Virtual:X hljóð
      • Þráðlaus 6.5″ bassakeila
      • NFC flaga til að tengja síma samstundis
      • 430W
      Setja í körfu