Lýsing
Náttljós og hleðslumotta
Yeelight Wireless Charge Nightlight er sniðugt tæki sem sameinar náttljós og þráðlausa hleðslumottu. Náttljósið seglast á mottuna og hægt er að hafa það eitt og sér. Ljósið er með tvær stillingar, ein sem er bláleit og bjartari, önnur sem er gulleitari og töluvert daufari. Þú þarft einfaldlega að leggja símann þinn á hleðslumottuna. Ath. að síminn þarf að styðja Qi wireless charging.
