Search
Search

Imilab EC6 2K Dual tvöföld öryggismyndavél með ljóskastara

24.990 kr.

  • 2K upplausn á hvorri myndavél, 132° víðlinsa
  • Getur vaktað tvö svæði samtímis
  • Allt að 256GB minniskort í stjórnstöð eða skýjaþjónusta geymir upptökur
  • Hreyfiskynjari, PIR human detection, hljóðnemi og hátalari
  • IP66 vottun
  • Innbyggður ljóskastari og IR LED ljós sýna fulllitaða myndbandsupptöku allann sólarhringinn

Ekki til á lager

Fá tölvupóst þegar vara kemur á lager

Vörunúmer: S1132

Tvöföld öryggismyndavél

IMILAB EC6 er einstök öryggismyndavél sem hentar vel fyrir íslenska veðráttu. EC6 er með tvær myndavélar sem geta samtímis vaktað 2 mismunandi svæði í 2K upplausn. EC6 er með innbyggða ljóskastara sem hægt er að láta kvikna á við hreyfingu og einnig er innbyggð sírena til að fæla frá óboðna gesti.

tvöföld öryggismyndavél úti með ljóskastara og sírenu

Tvær myndavélar í einni

Gervigreind skannar hreyfingu og sendir tilkynningar

Neðri myndavél getur elt hreyfingu 360°

tvöföld öryggismyndavél úti með ljóskastara og sírenu

Margvíslegir festingamöguleikar

IMILAB EC6 hentar á marga staði en hægt er að festa vélina undir þakskyggni, á vegg eða á staur. Vélina er hægt að tengja með annaðhvort WiFi eða netkapal og rafmagnssnúran sem fylgir vélinni er 3 metrar á lengd. Efri myndavélina er hægt að stilla 120° til hliðanna og 10° upp eða niður svo að hún beini á réttann stað. Neðri myndavélina er svo hægt að snúa í Xiaomi Home appinu bæði upp/niður og hægri/vinstri. 

2K upplausn og tvíhliða samtöl

Hægt er að opna myndavélina í gegnum Xiaomi Home appið og sjá svæðið sem er verið að vakta. Ef að einhver sést á vaktsvæðinu er hægt að opna fyrir tvíhliða samtöl þar sem myndavélin er með innbyggðan hátalara og míkrófón. Bæði efri og neðri myndavélin eru með 2K upplausn, ásamt 4 ljóskösturum og 4 infrarauðum ljósum til að sjá vel hvort sem það er dagur eða nótt.

tvöföld öryggismyndavél úti með ljóskastara og sírenu
tvöföld öryggismyndavél úti með ljóskastara og sírenu

Tilkynningar beint í símann

IMILAB EC6 tengist við Xiaomi Home appið, í appinu er hægt að stilla afmarkað svæði sem að myndavélarnar vakta sérstaklega vel, þegar hreyfing er skynjuð sendir appið tilkynningar svo hægt sé að skoða strax hvað er í gangi. Í appinu er einnig hægt að kveikja á ljóskösturunum, skoða gamlar upptökur, snúa neðri myndavélinni og fleira.

SD kort eða skýjaþjónusta geyma upptökur

Hægt er að setja SD kort í myndavélina allt að 256GB að stærð sem að tekur upp 24/7. Einnig er hægt að kaupa áskrift að skýjaþjónustu sem að tekur upp við hreyfingu. Nýjir notendur fá 3 fría mánuði af skýjageymslu til að byrja með.

tvöföld öryggismyndavél úti með ljóskastara og sírenu