Search
Search

Kingsmith Walkingpad MC21 göngubretti

139.990 kr.

  • Samanbrjótanlegt í miðju og hægt að fella niður handrið
  • 0.5 -10km hraði
  • Burðargeta: 110kg
  • 2 LED skjáir sem sýnir tíma, lengd, hraða og kaloríur
  • 1200x440mm æfingaflötur
  • 1.25HP burstalaus mótor
  • Standur fyrir síma eða spjaldtölvu
  • Innbyggð NFC flaga til að fá upplýsingar beint í símann
  • Stærð og þyngd:
    • 37.5kg
    • 1455x700x1070mm í notkun
    • 1025x700x155mm samanbrotið

Ekki til á lager

Fá tölvupóst þegar vara kemur á lager

Vörunúmer: TRMC21F

Kingsmith MC21 göngubretti

Kingsmith göngubrettin er fullkomin leið til þess að auka hreyfinguna, þú getur haft brettið hjá skrifborðinu og tekið nokkur skref á meðan þú svarar nokkrum tölvupóstum eða horfir á uppáhalds sjónvarpsþáttinn þinn. Göngubrettið er samanbrjótanlegt og er því hægt að geyma það þægilega á milli æfinga. Brettið sjálft er breitt og með undirlagi sem styður vel við líkamann á meðan á æfingu stendur.

Labb, skokk eða 10km sprettir

Hraðinn á MC21 er allt frá 0.5km/klst uppí 10km/klst. Það er því hægt að gera allt frá því að labba rólega í að hlaupa á brettinu. Þegar handriðið er niðri fer brettið ekki hraðar en 6km/klst.

Auðveld geymsla á milli æfinga

Göngubrettið er brotið saman á milli æfinga og minnkar þá geymslupláss þess svo um munar. Þá er hægt að rúlla brettinu undir sófa eða rúm á innbyggðum dekkjum og geyma það á þægilegan hátt þegar það er ekki í notkun.

Innbyggðir upplýsingaskjáir

Lögð hefur verið sérstök áhersla á fallega og rúmgóða hönnun og passa því Kingsmith göngubrettin vel inn á öll heimili. Hraðinn á brettinu stýrist eftir því hvar þú stígur á það en það er einnig hægt að stilla hraðann með appi í símanum eða með fjarstýringu. Upplýsingar um hraða, lengd, fjölda brenndra kaloría, skref og tímann sem þú hefur labbað eða skokkað birtast svo á stíllegum skjám sem eru innbyggðir í brettið, í haldfanginu er flottur skjár þar sem hægt er að stilla brettið og beint fyrir ofan stigbrettið er minni skjár sem sýnir helstu upplýsingar, tilvalið þegar handriðið er fellt niður. Þá er einnig innbyggð NFC flaga sem tengir þig beint við Kingsmith appið þegar þú setur snjallsímann þinn upp við.