Search
Search

Rawbike 250E 250W rafmagnshjól

349.990 kr.

Rawbike 250E er byggt á velgengni Rawbike 4 og notar sama fallega ramma. Munurinn á þessum hjólum er að mótorinn á 250E er 250W (750W mótor á Rawbike 4) og rafhlaðan er ögn minni en skilar sér samt í allt að 50km drægni.

  • 250W mótor
  • Aðeins 30kg að þyngd
  • Allt að 50km drægni
  • Mótor fer uppí 25km/klst
  • Samanbrjótanlegt
  • Hægt að setja nagladekk fyrir veturinn

Rawbike 250E er með inngjöf eins og Rawbike 4, en inngjöfin fer einungis uppí 5 km/klst hraða

Vörunúmer: MIIV-0095

Rawbike er glæsilegt rafmagnshjól hannað og framleitt í Svíþjóð. Rawbike er stórt, kröftugt og sterkbyggt og hentar í akstur hvar sem er og hvernig sem viðrar. Rawbike kemur á 20″ stórum og breiðum dekkjum frá Kenda en einnig er hægt að fá nagladekk sem eru seld sér. Á stýri hjólsins er inngjöf sem gerir hjólinu kleyft að fara á 5km/klst hraða án þess að pedala. Hámarkshraðinn sem 250W mótorinn kemst uppí er 25 km/klst. Drægnin á hjólinu er frábær, en á einni hleðslu nær Rawbike 250E að ferðast allt að 50 kílómetra.

Rawbike hjólin eru sterklega byggð og endingargóð hjól gerð úr umhverfisvænu efni sem veita þér mörg ár af ánægjulegum ferðum.

Rafhlaðan kemur frá LG og er framleidd eftir ströngum gæðakröfum. Hægt er að taka rafhlöðuna úr hjólinu til þess að hlaða hana sér.

Hvert einasta Rawbike er kolefnisjafnað hjá framleiðanda og lagt er mikið upp úr því að bæta enn frekar framleiðsluferlið.

Hefur þig langað til þess að hjóla upp Esjuna?

Rawbike er ekki eins og hvert annað götuhjól. Þér eru allir vegir færir og þú getur farið hvert sem þig dreymir um á góðum og þykkum dekkjum á traustu stelli. Farðu þína eigin leið á kröftugu, umhverfisvænu og fallegu rafmagnshjóli frá Rawbike

Ekki hafa áhyggjur af því að verða rafmagnslaus! Bæði er frábær drægni á rafhlöðunni í hjólinu sjálfu en það er líka hægt að stinga símanum í hleðslu í USB innstungu á hjólinu.

Ef þú vilt leyfa vindunum að blása í gegnum hárið og njóta þess að leyfa hjólinu að koma þér hvert sem þú vilt þá kemstu allt að 50 km á einni hleðslu.

Rawbike 250E kemur 95% samsett úr kassanum og tekur aðeins nokkrar mínútur að klára samsetninguna. Það þarf einungis að festa sætið og stýrið í rétta hæð og draga út pedalana. 

Rawbike opnar á nýja möguleika í ferðalögum. Hjólið er samanbrjótanlegt þannig það er auðveldara að ferðast með það. Rawbike 250E hefur innbyggðan skjá sem sýnir þér mikilvægar upplýsingar eins og hraða og stöðuna á rafhlöðunni. Njóttu frelsisins, farðu ótroðnar slóðir og upplifðu náttúruna á nýjan hátt með Rawbike

Samanbrjótanlegt

Frábært úrval af aukahlutum í boði

Geymslukassar, geymslukerrur, rafhlöður, vettlingar og allt þar á milli. Skoðaðu úrvalið með því að smella á hnappinn hér fyrir neðan.

Langar þér að prufukeyra? Komdu við í Mi búðinni, Ármúla 21 og prófaðu Rawbike rafmagnshjólin hjá okkur.