- 2200 ANSI Lumen
- FHD 1920 x 1080 upplausn
- 30″ – 300″ skjástærð
- LED lampi, 25.000klst líftími
- 16W harman/kardon hljóðkerfi







XGIMI Horizon skjávarpi
Ekki til á lager199.990 kr.
Á stuttum tíma hefur XGIMI skapað sér sess sem eitt af helstu skjávarpamerkjum heimsins í dag, þekkt fyrir framúrskarandi gæði og notendavæna skjávarpa. XGIMI hefur unnið yfir 40 alþjóðlegra viðurkenninga, þar á meðal EISA Best Buy Projector Award, CES Best Innovation Award, iF Design Award, Red Dot og Good Design Award.
Ekki til á lager
Lýsing
HORIZON
Greatness is on Your Horizon
Alltaf Bjartur
Öflug tækni HORIZON þegar kemur að birtustigi myndarinnar gerir það að verkum að HORIZON er einn bjartasti skjávarpi í sínum flokki, sem völ er á í dag. 2200 ANSI Lumens auðvelda skjávarpanum að skila bjartri mynd, jafnvel í björtu umhverfi.




Umbreyttu Heimilinu á Sekúndum
HORIZON skjávarpann er auðvelt að setja upp í nánast hvaða rými sem er. Hröð uppsetning, sjálfvirkur fókus og keystone leiðrétting ásamt AI object detection, gera það að verkum að skjávarpinn er tilbúinn að varpa hágæða efni hvar og hvenær sem er.




Hárnákvæmir litir
Mikið úrval ríkra og nákvæmra lita tryggir að hvert smáatriði á skjánum fær að njóta sín betur og tryggir í leiðinni betri upplifun áhorfanda.

Smáatriðin skipta líka máli
Xgimi Horizon er með innbyggðri keystone leiðréttingartækni og getur stillt myndina af, hvort sem hún er lóðrétt eða lárétt. Þú getur einnig stillt keystone handvirkt, til að fullkomna myndina.
X-VUE 2.0 Myndvinnsla
Einstakt X-VUE myndvinnslukerfi XGIMI eykur skýrleika og trúverðugleika mynda, svo um munar. Myndgæðin eru skýrari og jafnari, með skarpari og nákvæmari litum sem grípa áhorfandann!

Ótrúlega Litríkur, Merkilega Skilvirkur
HORIZON sameinar öflugustu myndbandseiginleika XGIMI og gerir þá enn aðlögunarhæfari með innbyggðum AI-skynjara. HORIZON nýtir sér litla sem enga seinkun myndar, góða skerpu og framúrskarandi myndgæði til að fullkomna útkomu skjávarpans.



XGIMI FHD Optical Engine
1920*1080 resolution, 2.07 milljón pixlar
2200ANSI lumens

Allt sem þú þarft
í einum pakka
Xgimi HORIZON er fjölhæfasti og þægilegasti FHD skjávarpinn frá Xgimi til þessa. Skjávarpinn pakkar heilum helling af eiginleikum í gríðarlega öflugum pakka. Búðu til sanna bíóupplifun heima í stofu á nokkrum sekúndum.

Það geta allir tengt við Horizon
Xgimi HORIZON er með 2 HDMI tengi, 1 USB tengi, LAN tengi ásamt Optical tengi og AUX.

Bíóupplifun heima í stofu
Xgimi HORIZON færir þér kristaltæra 1080P upplausn, í allt að 300″. Þetta gerir þér kleift að taka þína bíóupplifun upp á hærra stig! Skapaðu alvöru bíó stemningu heima í stofu.
Heyrðu Hverja Einustu Nótu
Hljóðkerfi Xgimi HORIZON er samvinna á milli Xgimi og virta hátalaraframleiðandanum Harman Kardon. Tveir 8W, 45mm hátalarar sem eru sérstaklega þróaðir af Harman Kardon fyrir HORIZON skjávarpann tryggja ótrúlegt jafnvægi og hljómgæði, með lítilli sem engri röskun.



Með því að smella á Google Assistant takkann á fjarstýringunni færðu beinan aðgang að raddstýringu.

HORIZON er keyrt á AndroidTV stýrikerfinu sem gerir það að verkum að þú getur stýrt þinni upplifun sjálfur.

Skjávarpinn kemur með öllum helstu streymisveitum en þú getur líka sótt það sem vantar í gegnum PlayStore.

Innbyggt Chromecast gerir þér kleift að varpa efni, forritum og leikjum beint yfir á Horizon úr símanum þínum.