Search
Search

Xiaomi Portable Electric Air Compressor 2 þráðlaus loftdæla

11.990 kr.

  • Hámark 150 psi, stoppar að pumpa þegar psi markmiði er náð
  • Lithium rafhlaða dugar í yfir 60 rafmagnshlaupahjóladekk, 2 bíldekk frá 0 psi
  • Endurhlaðanlegt með USB-C og vegur einungis 490gr
  • 6 stillingar fyrir mismunandi pumpun
  • Aukahlutir sem fylgja:
    • Boltapumpunál
    • Presta Valve
    • Schrader Valve
    • Geymslupoki
    • Hleðslusnúra

Á lager

Vörunúmer: 46422

Air Compressor 2 loftdæla

Öflug þráðlaus loftdæla sem pumpar eftir ákveðnu psi

Lítil en öflug loftdæla

Ný kynslóð af Xiaomi loftdælunum gefur ekkert eftir og er 25% aflmeiri en forveri sinn. Hægt er að stilla hvaða psi á að fara í dekkið og loftdælan hættir að pumpa þegar því psi er náð. Loftdælan hentar einstaklega vel fyrir allar pumpþarfir, en í pakkanum kemur millistykki fyrir hefðbundna Schrader ventla, Presta ventla og síðast en ekki síst nál til að pumpa í bolta.

6 mismunandi stillingar

Á loftdælunni eru 6 mismunandi stillingar; Manual, reiðhjól, mótorhjól, bíldekk, boltar og ný rafmagnshlaupahjólastilling. Einnig er hægt að stilla psi eða bari eftir hentusemi og láta loftdæluna sjá um rest. Á loftdælunni er LED ljós sem hjálpar til við að finna ventla, sérstaklega hentugt þegar dimmir. Á hverri hleðslu er hægt að fylla á allt að 10 bíldekk eða pumpa í 2 alveg loftlaust dekk. Loftdælan er svo endurhlaðanleg með USB-C snúru.