- 2304×1296, 3MP upplausn. F1.4 ljósop
- IR nætursjón, hreyfiskynjari, hljóðnemi og hátalari
- Tvíhliða samtöl
- Getur elt hreyfingu
- Hægt að snúa 360° til hliðar, 108° upp og niður
- Stækkanleg skýjageymsla fylgir
- Tekur 256GB SD kort
Lýsing
Xiaomi C300 innandyra öryggismyndavél
360° öryggismyndavél fyrir heimili, skrifstofur og bústaði
2K upplausn | 3MP | 360° hreyfigeta | Infrarauð nætursjón | Eltir hreyfingu | Gervigreind skynjar manneskjur | Tvíhliða samtöl


Öryggismyndavél sem vaktar allt svæðið
C300 nær að vakta stórt svæði en vélinni er hægt að snúa í appinu 360° til hliðanna og 108° upp og niður. Myndavélin getur einnig elt hreyfingar með notkun gervigreindar og sent tilkynningar í síma þegar hreyfing er á sjónsviði myndavélarinnar.

Há upplausn sýnir meiri og skarpari smáatriði
Xiaomi C300 öryggismyndavélin er með 3MP linsu sem skilar upplausn 2304×1296 eða 2K. Það tryggir að fleiri smáatriði sjáist og allt verður þeim mun skarpara. Linsan minnkar einnig truflun frá ljósi og upptakan verður þar af leiðandi líflíkari.

1080P

1296P

Sofðu rótt með öryggið á oddinum
C300 er með u2028 infrarauðri nætursjón. Vélin sér einstaklega vel í lágum birtuskilyrðum og gefur ekki frá sér ljós sem gæti truflað værann svefn. Vélin heldur litaupptöku í lágum birtuskilyrðum en í miklu myrkri skiptir hún yfir í svarthvítt.
Skoðaðu upptökur í rauntíma
Með því að tengja C300 við önnur snjalltæki eins og Mi Smart Clock er hægt að sjá upptökur og rauntímastreymi á skjá vekjaraklukkunar.


Skynjar hreyfingu og sendir tilkynningar
C300 er með uppfærðu gervigreindar reikniriti. Gervigreindin er betur í stakk búin að greina hreyfingar og mannaferðir og senda tilkynningar í síma. Gervigreindin sér einnig til þess að sía út óþarfa tilkynningar. Hægt er að stilla myndavélina þannig að hún elti hreyfingar.
Tvíhliða samtöl í rauntíma
Með Xiaomi Home appinu er hægt að hefja tvíhliða samtal í rauntíma þökk sé innbyggðum míkrófón og hátalara í myndavélinni. Myndavélin nær að taka upp hljóð frá allt að 5 metrum og síar út óþarfa læti fyrir skýrari samtöl.

Staðbundin geymsla + skýjageymsla = meira öryggi
Hægt er að setja SD kort í myndavélina sem vistar upptökur þegar hreyfing er skynjuð. Myndavélin tekur allt að 256GB stórt SD kort. Eftir að myndavélin hefur verið tengd við Xiaomi Home appið vistast allt að 9 sekúndna myndbönd í allt að 3 mánuði í skýjageymslu. Ef þörf krefur er hægt að kaupa aðgang að stærri hýsingu með lengri upptökum í hvert sinn.

microSD kort
Allt að 256GB

Skýjageymsla
Ótakmörkuð geymsla
Upp eða niður, þitt er valið!


Einföld uppsetning í þremur skrefum

Náðu í Xiaomi Home appið og stofnaðu aðgang/skráðu þig inn

Tengdu myndavélina í rafmagn og bíddu eftir að það komi appelsínugult ljós hjá linsunni

Ýttu á plúsinn (+) í efra hægra horninu og leitaðu að C400, fylgdu leiðbeiningum í appinu og vélin verður tilbúin til notkunar