Xiaomi Smart Camera C400 öryggismyndavél

13.990 kr.

  • 2560×1440, 4MP upplausn. F1.4 ljósop
  • IR nætursjón, hreyfiskynjari, hljóðnemi og hátalari
  • Tvíhliða samtöl
  • Getur elt hreyfingu
  • Hægt að snúa 360° til hliðar, 106° upp og niður
  • Stækkanleg skýjageymsla fylgir
  • Tekur 256GB SD kort

Á lager

Síminn Pay Léttkaup
kr
Greiða eftir 14 daga

14 daga greiðslufrestur er í boði fyrir þessa vöru.

Smelltu hér til skoða verðskrá Síminn Pay.

Vörunúmer: 42942 Flokkar: , , Brand:

Lýsing

Xiaomi C400 innandyra öryggismyndavél

360° öryggismyndavél fyrir heimili, skrifstofur og bústaði

2.5K upplausn | 4MP | 360° hreyfigeta | Infrarauð nætursjón | Eltir hreyfingu | Gervigreind skynjar manneskjur | 2.4GHz / 5GHz WiFi | Tvíhliða samtöl

Öryggismyndavél sem vaktar allt svæðið

C400 nær að vakta stórt svæði en vélinni er hægt að snúa í appinu 360° til hliðanna og 106° upp og niður. Myndavélin getur einnig elt hreyfingar með notkun gervigreindar og sent tilkynningar í síma þegar hreyfing er á sjónsviði myndavélarinnar.

Xiaomi Smart Camera C400 öryggismyndavél sér yfir allt rýmið

Há upplausn sýnir meiri og skarpari smáatriði

Xiaomi C400 öryggismyndavélin er með 4MP linsu sem skilar upplausn 2560×1440 eða 2.5K. Það tryggir að fleiri smáatriði sjáist og allt verður þeim mun skarpara. Linsan minnkar einnig truflun frá ljósi og upptakan verður þar af leiðandi líflíkari.

Xiaomi Smart Camera C400 öryggismyndavél hágæða upplausn
Xiaomi Smart Camera C400 öryggismyndavél nætursjón

Sofðu rótt með öryggið á oddinum

C400 er með 940nm infrarauðri nætursjón. Vélin sér einstaklega vel í lágum birtuskilyrðum og gefur ekki frá sér ljós sem gæti truflað værann svefn.

Skoðaðu upptökur í rauntíma

Með því að tengja C400 við önnur snjalltæki eins og Mi Smart Clock er hægt að sjá upptökur og rauntímastreymi á skjá vekjaraklukkunar.

Xiaomi Smart Camera C400 öryggismyndavél hægt að tengja við önnur snjalltæki
Xiaomi Smart Camera C400 öryggismyndavél greinir manneskjur

Skynjar hreyfingu og sendir tilkynningar

C400 er með uppfærðu gervigreindar reikniriti. Gervigreindin er betur í stakk búin að greina hreyfingar og mannaferðir og senda tilkynningar í síma. Gervigreindin sér einnig til þess að sía út óþarfa tilkynningar. Hægt er að stilla myndavélina þannig að hún elti hreyfingar.

Tvíhliða samtöl í rauntíma

Með Xiaomi Home appinu er hægt að hefja tvíhliða samtal í rauntíma þökk sé innbyggðum míkrófón og hátalara í myndavélinni. Myndavélin nær að taka upp hljóð frá allt að 5 metrum og síar út óþarfa læti fyrir skýrari samtöl.

Xiaomi Smart Camera C400 öryggismyndavél tvíhliða samtöl

Staðbundin geymsla + skýjageymsla = meira öryggi

Hægt er að setja SD kort í myndavélina sem vistar upptökur þegar hreyfing er skynjuð. Myndavélin tekur allt að 256GB stórt SD kort. Eftir að myndavélin hefur verið tengd við Xiaomi Home appið vistast allt að 9 sekúndna myndbönd í allt að 3 mánuði í skýjageymslu. Ef þörf krefur er hægt að kaupa aðgang að stærri hýsingu með lengri upptökum í hvert sinn. 

öryggismyndavél innimyndavél sem snýst og hreyfiskynjari

microSD kort

Allt að 256GB

öryggismyndavél innimyndavél sem snýst og hreyfiskynjari

Skýjageymsla

Ótakmörkuð geymsla

Upp eða niður, þitt er valið!

Styður hefðbundna og öfuga festingu. Myndavélina er hægt að hengja í loft eða einfaldlega leyfa henni að sitja á borði. Myndavélinni fylgir festing sem er auðvelt að skrúfa í loft. Til að snúa myndinni við þarf bara að snúa skjánum í stillingum myndavélarinnar.
Xiaomi Smart Camera C400 öryggismyndavél á borði
Xiaomi Smart Camera C400 öryggismyndavél á hvolfi

Einföld uppsetning í þremur skrefum

Xiaomi Smart Camera C400 öryggismyndavél tákn 3

Náðu í Xiaomi Home appið og stofnaðu aðgang/skráðu þig inn

Xiaomi Smart Camera C400 öryggismyndavél tákn 2

Tengdu myndavélina í rafmagn og bíddu eftir að það komi appelsínugult ljós hjá linsunni

Xiaomi Smart Camera C400 öryggismyndavél tákn 1

Ýttu á plúsinn (+) í efra hægra horninu og leitaðu að C400, fylgdu leiðbeiningum í appinu og vélin verður tilbúin til notkunar

Engin tæknilýsing skráð