Search
Search

Xiaomi Smart Plug 2 snjöll Wi-Fi innstunga

4.490 kr.

  • Snjallinnstunga sem tengist í WiFi og stjórnað úr Xiaomi Home appinu
  • Snjallvæðir venjuleg tæki
  • Hægt að skoða yfirlit yfir rafmagnsnotkun
  • Verndar gegn ofhitnun
  • Hægt að tímastilla hvenær kviknar/slökknar

Á lager

Vörunúmer: 44307

Snjöll WiFi innstunga

Snjallvæðir venjuleg tæki

Stýrt úr appi | Hægt að tímastilla hvenær kviknar/slökknar | Yfirlit yfir rafmagnsnotkun | Öruggt í notkun | Hægt að stýra með röddinni

Snjallvæðir venjuleg tæki

Með því að tengja snjallinnstunguna við Xiaomi Home appið er hægt að kveikja og slökkva á rafmagnsinngjöf í gegnum síma. Þannig er hægt að t.d kveikja á kaffivélinni úr rúminu eða slökkva á lampanum sem er kveiktur fram í stofu.

Snjöll WiFi innstunga Xiaomi Smart Plug 2 hero banner snjallvæðir tæki
Snjöll WiFi innstunga Xiaomi Smart Plug 2 slekkur á tækjum

Vaktaplan fyrir raftæki

Með því að setja upp tímaplan er hægt að sjá til þess að þegar þú ferð út úr húsi á morgnana þá ert þú fullviss um að slökkt hafi verið á raftækjunum. 

Yfirlit yfir rafmagnsnotkun

Í Xiaomi Home appinu er hægt að fá ítarlega greiningu á rafmagnsnotkun snjallinnstungunnar yfir daginn. Það er líka hægt að skoða greiningu frá síðustu vikum eða mánuði.

Snjöll WiFi innstunga Xiaomi Smart Plug 2 yfirlit yfir rafmagnsnotkun
Snjöll WiFi innstunga Xiaomi Smart Plug 2 hitavarið efni

Öruggt í notkun

Snjall innstungan hefur staðist hitaprófanir að 750° og er því einstaklega öruggt í notkun og eldvarið.

Tilkynningar við óeðlilegar aðstæður

Þegar snjallinnstungan nemur óeðlilegar aðstæður eins og mikinn hita frá rafmagnsinntakinu sendir hún tilkynningar í Xiaomi Home appinu svo að þú getir brugðist við hratt og örugglega.

Snjöll WiFi innstunga Xiaomi Smart Plug 2 lætur vita af óeðlilegum aðstæðum
Snjöll WiFi innstunga Xiaomi Smart Plug 2 tekur lítið pláss

Stílhreint, fallegt, lítið og nett

Hvort sem snjallinnstungunni er komið fyrir í vegginstungum eða fjöltengi tekur hún einstaklega lítið pláss og litlar líkur á að það passi ekki með öðrum tækjum á sama stað.

Snögg og einföld uppsetning í þremur skrefum

Stjórnað auðveldlega úr Xiaomi Home appinu

Snjöll WiFi innstunga Xiaomi Smart Plug 2 tákn 1

Komdu snjallinnstungunni fyrir í rafmagnsinnstungu, hinkraðu eftir því að sjá blikkandi appelsínugult ljós. Í Xiaomi Home appinu ýtir þú svo á plús (+) merkið í hægra efra horninu og bætir við Xiaomi Smart Plug 2 (Wi-Fi).

Snjöll WiFi innstunga Xiaomi Smart Plug 2 tákn 2
Snjöll WiFi innstunga Xiaomi Smart Plug 2 tákn 3

Veldu Wi-Fi tenginguna þína og sláðu inn lykilorðið

Snjöll WiFi innstunga Xiaomi Smart Plug 2 tákn 2
Snjöll WiFi innstunga Xiaomi Smart Plug 2 tákn 1

Snjallinnstungan er tilbúin til notkunar þegar bláa ljósið blikkar