- 1,43″ AMOLED skjár
- 65 tíma rafhlöðuending við hefðbundna notkun
- Mælir hjartslátt, skref, svefn, stress og blóðsúrefnismettun
- Hægt að geyma og spila tónlist ásamt því að svara símtölum
- 150+ íþróttastillingar, 5ATM vatnsvarið, styður GPS, Bluetooth og Wi-Fi tengingu
- Líkamsástandsmælir mælir fituprósentu, efnaskiptahraða og saltmagn beina
- GoogleWearOS stýrikerfi
- Hægt að borga með úri
- Hægt að nota Google öpp







Xiaomi Watch 2 Pro BT snjall- og heilsuúr
49.990 kr.
Lýsing
Watch 2 Pro
Einstaklega snjallt heilsuúr með Google WearOS


Fáðu snilldina af Google öppum beint á úlnliðinn
Knúið áfram af Snapdragon® W5+ Gen 1 örgjörva
Ofursnöggur og sparneytinn örgjörvi
Uppfærð mæling á heilsu, útivist og íþróttum
Fjölhæf greining á hjartslætti, blóðsúrefnismettun, svefni og fleira
Tenging við 5 gervihnattarkerfi með dual-band GNSS
Fylgstu nákvæmlega með útihlaupum og göngutúrum
1.43″ AMOLED skjár með Always-on-Display
Hægt að velja úr fjölda mismunandi skífa eftir tilefni
AMOLED skjár
Kristaltær
Bjartur og nákvæmur 1.43″ AMOLED skjár þar sem allt það mikilvægasta sést auðveldlega.
Upplausn
466×466
PPI
326
Klassísk snúningskrúna
Tveir hliðartakkar
Xiaomi Watch 2 Pro heldur í hefðirnir og er með svipaðri snúningskrúnu eins og þekkist á hefðbundnum klassískum úrum. Með snúninskrúnunni er hægt að fletta í gegnum allt það sem úrið hefur uppá að bjóða auk þess að geta notað snertiskjá úrsins. Að auki snúningskrúnunnar eru á úrinu tveir hliðartakkar sem bjóða uppá fjölbreytta virkni og aukin þægindi.


Google Play
Krafturinn úr Google forritum á úlnliðnum
Google WearOS stýrikerfið býður uppá nánast endalausa möguleika en í gegnum Google Play er aðgangur að yfir 200 forritum svo að þú getir lifað þínu snjallasta lífi
Fleiri sniðugar og þægilegar lausnir







Snapdragon® W5+ Gen 1 4nm flaggskips örgjörvi
Örgjörvinn í úrinu er einstaklega kröftugur en á sama tíma sparneytinn. Að skruna í gegnum mörg mismunandi forrit, hefja heilsumælingar, æfingar eða hvað sem er er einstaklega snögggert og saumlaus notendaupplifun. Á úrinu er einnig stór 32GB geymsla þar sem hægt er að geyma tónlist, forrit eða úrskífur
Vinnsluminni
2GB
Geymslupláss
32GB
Kraftur út daginn og miklu meira til
Samvinna sparneytins örgjörva og stórri rafhlöðu skilar sér í lengri endingu rafhlöðunnar sem endist út daginn og miklu meira til.
Allt að
65 klukkustundir


Yfir 150 íþróttastillingar
Xiaomi Watch 2 Pro er með yfir 150 innbyggðar íþróttastillingar svo að þú getir vaktað nákvæmlega heilsuna og frammistöðu þína í gegnum æfingarnar. T.d ef þú ferð í tennis þá telur úrið hversu oft þú gafst upp, hversu oft þú sveiflaðir með bakhendinni o.s.frv. Eftir að æfingu er lokið sérð þú samantekt af æfingunni og hversu langa hvíld er mælt með að taka eftir átökin.
Innbyggt GPS með tengingu við 5 gervihnattarkerfi
Innbyggt dual-band GPS í Xiaomi Watch 2 Pro eykur nákvæmni mælinga á göngum og hlaupum til muna. Mælingar yfir flókin landsvæði verða leikur einn.


Stingdu þér til sunds
Xiaomi Watch 2 Pro er með 5ATM vatnsvörn sem þýðir að þú getir stungið þér til sunds með úrið á úlnliðnum. Hægt er að velja úr nokkrum mismunandi sundæfingar og þá getur úrið talið fyrir þig hversu mörg sundtök voru tekin, hversu margar ferðir voru syntar og hversu mörgum kaloríum var brennt.
Mæling á líkamssamsetningu
Með viðnámsskynjara sem mælir í gegnum rafsvið líkamans getur Xiaomi Watch 2 Pro sýnt alls konar heilsufarsupplýsingar, svo sem fituprósentu líkamans, efnaskiptahraða og saltmagn í beinum. Með þessari mælingu er hægt að fá góða yfirsýn og aukinn skilning á eigin líkama auk þess að geta fylgst vel með framförum.

Fáðu betri yfirsýn og sofðu betur
Svefn er eitt það allra mikilvægasta sem þarf að huga að í heilsunni. Xiaomi Watch 2 Pro getur hjálpað til að greina hvernig svefnin er, hversu lengi er sofið og í hvaða svefnstigum svefninn er. Á sama tíma mælir úrið hjartslátt, blóðsúrefnismettun og gæði öndunar.

Öndunaræfingar
Úrið leiðir þig í gegnum æfingu þar sem þú nærð dýpri öndun og meiri slökun

Hjartsláttur allann sólarhringinn
Úrið mælir hjartsláttinn allann sólarhringinn og getur sent tilkynningar þegar óreglulegur hjartsláttur er numinn

Blóðsúrefnismettun Sp0₂
Mælir hversu mikið súrefni er að flytjast með rauðum blóðkornum, getur sent tilkynningar ef of lágt stig er numið

Fylgist með tíðarhringnum
Fylgist vel með og vaktar tíðarhringinn og spáir fyrir hvenær hann endar og byrjar á ný

Fylgist með stressi
Vaktar stress stig, hjálpar til við núvitund og eykur skilning á líkamsástandi
Veldu þinn stíl
Nánast endalaust úrval af flottum úrskífum sem er hægt að skipta um eftir tilefni og tilfinningu
Xiaomi Watch 2 Pro kemur með yfir 20 innbyggðum flottum úrskífum sem er hægt að velja úr. Hvort sem þú vilt sýna og sjá klassískar úrskífur eða tæknilegri heilsuskífur þá er valið í þínum höndum.








Tengdar vörur
- 5.990 kr.
Umbreyttu heimilistækjunum þínum Aqara Smart Plug getur auðveldlega breytt hefðbundnum heimilistækjum í snjalltæki. Fjölmargir snjallar senur og skipanir eru í boði þegar innstungan vinnur með öðrum Aqara snjalltækjum. Fullkomin stjórn með símanum Gleymdirðu að slökkva á viftunni þegar þú fórst að heiman? Með Aqara Home eða Mi Home snjallforritinu…