Yeelight Smart Bulb W4 Lite lita snjallpera – 4 stk

11.990 kr.

  • Snjallpera stjórnað úr appi, tengist með Wi-Fi og þarf ekki brú
  • 16 milljón litir, 806 lumen
  • 2.700 – 6.500 Kelvin
  • Dimmanleg, dansar með tónlist
  • Virkar með Google Home, Apple HomeKit, Alexa og fleiri snjallkerfum

Ekki til á lager

Fá tölvupóst þegar vara kemur á lager

Vörunúmer: 224051

Stjórnaðu ljósunum í gegnum síma eða með röddinni einni

Yeelight W4 Lite litaperan kemur í staðinn fyrir hefðbundnar ljósaperur (E27 skrúfstærð). Peran er með innbyggðu Wi-Fi og þarf því enga brú til að stýra í gegnum heldur tengist hún beint við Yeelight appið. Í Yeelight appinu er hægt að breyta lit, minnka birtustig, setja á sérstakar stillingar, stýra nokkrum perum á sama tíma (t.d öllum perum í stofunni) og margt margt fleira. Einnig er hægt að tengja peruna við Google Home, Apple HomeKit og Alexa til þess að geta nýtt röddina til að stýra perunni.

Verði ljós

W4 Lite er stílhrein og nett pera sem að fer lítið fyrir. Fyrir utan að geta skipt um lit á perunni getur hún verið án litar, þá er hægt að skipta um hitastig á perunni til að breyta úr kaldri lýsingu yfir í heitari.