Amazfit GTR 2e snjall- og heilsuúr

24.990 kr.

  • 1,39″ skjár
  • Allt að 24 daga rafhlöðuending
  • Mælir skref, svefn, stress og súrefnismettun
  • 90 íþróttastillingar, vatnshelt á allt að 50m dýpi, mælir REM svefn, GPS
Vörunúmer: 6545009770545

Amazfit GTR 2e

Þunn og Rammalaus Hönnun | HD Always-on AMOLED Skjár Heilsu og íþróttamæling | Endingargóð rafhlaða

Kúpt Rammalaus Hönnun.

Með hágæða 1.28″ AMOLED skjá er hægt að velja á milli fjölda mismunandi útlita á skífunni á úrinu og gjörbreyta þannig útlitinu á einfaldan hátt.

Úrið er einstaklega létt og vegur einungis 32g. Úrið er 5 ATM vatnsvarið sem þýðir að það þolir að vera á 50metra dýpi í 10 mínútur auk þess að þola auðveldlega skvettur og rigningu. Hægt er að fara með úrið í sund en ekki æskilegt að vera með það í miklu dýpi í lengri tíma.

Always-on Display. Mikilvægustu upplýsingarnar, alltaf.

Always-on Display gerir þér kleift að sjá tímann hvenær sem er, jafnvel þótt að aðrir eiginleikar úrsins séu ekki í boði. Einnig eru 40+ Always-on-Display skífur í boði svo úrið þitt getur endurspeglað þinn persónulega stíl.

5 ATM Vatnsvörn. Úrið fylgir þér hvert sem er

GTS 2e heldur í við hágæða úr, þegar kemur að vatnsheldni, þökk sé vatnsvörn sem tryggir að úrið geti farið alveg niður í 50 metra. Farðu áhyggjulaus í gegnum daginn með GTS 2e.

Gerðu úrið að þínu.

GTS 2e kemur með helling af fríum skífum sem þú getur valið úr. Þú getur einnig raðað upp og stillt flýtiflipa á mörgum þeirra til að sjá það sem skiptir þig mestu máli, á einfaldan hátt. Þú getur líka sett þínar eigin myndir sem bakgrunn á skífum.

90 innbyggðar íþróttastillingar

Amazfit GTR 2e kemur með 90 innbyggðum, sérstilltum íþróttastillingum sem bæta mælingar og ná því besta út úr hverri æfingu. Einnig þekkir úrið nokkrar sérvaldar íþróttir og getur byrjað að mæla út frá þeim án þess að þú þurfir að velja eitt eða neitt.

Stútfullt af allskonar sniðugum eiginleikum

Þessir hlutir, ásamt svo miklu fleiri hjálpa við að gera Amazfit GTR 2e að því frábæra snjallúri sem það er. Úrið lætur þig vita þegar þú átt von á símtali, lætur þig vita ef þú ert búin/n að sitja of lengi, ásamt fleiri sniðugum eiginleikum. Í úrinu getur þú einnig fylgst með veðrinu, sett skeiðklukku í gang og sett á Do Not Disturb, ef þú vilt bara fá að vera í friði.