Search
Search

Roborock S8 Pro Ultra ryksuguvélmenni með RockDock™ fullsjálfvirkri dokku

219.990 kr.

  • Allt að 180 mínútna þriftími, hentar fyrir allt að 300fm² rými
  • 6.000 Pa sogkraftur
  • 400 ml rykhólf
  • 300 ml vatnstankur
  • VibraRise hljóðbylgjutækni, Reactive 3D skynjari

RockDock™ fullsjálfvirk dokka

  • 424 x 513 x 450mm
  • 2.5L rykpoki
  • 3.5L hreinn vatnstankur
  • 2.9L óhreinn vatnstankur
  • Tæmir rykhólf sjálfkrafa eftir þrif
  • Þrífur og þurrkar skúringarmoppu, fyllir á vatnstank og þrífur affallsvatn frá moppuhreinsun
Vörunúmer: MIIV-0086

Roborock S8 Pro Ultra ryksuguvélmenni

 

Roborock S8 Pro Ultra er öflugt ryksuguvélmenni sem ryksugar og blautmoppar. S8 Pro Ultra er með tvöfaldan ryksugubursta, 6000 pa sogkraft og hentar vel á langflest heimili. S8 Pro Ultra kemur með einstakri RockDock™ fullsjálfvirkri dokku. RockDock™ tæmir rykhólfið á vélinni, fyllir á vatnstankinn, þrífur og þurrkar skúringarmoppuna og þrífur sjálfa sig eftir moppuhreinsun.

RockDock™

Þrífur skúringarmoppuna

Þrífur skúringarmoppuna sjálfkrafa bæði í miðjum þrifum og eftir hver þrif

Þurrkar skúringarmoppuna

Eftir að skúringarmoppurnar hafa verið hreinsaðar þurrkar RockDock™ stöðin moppurnar til að koma í veg fyrir ólykt og myglumyndun.

Tæmir rykhólfið sjálfkrafa

Eftir að ryksuguvélmennið hefur lokið þrifum tæmir RockDock™ stöðin rykhólfið á vélinni ásamt því að þrífa DuoRoller gúmmíburstana. Stöðin getur geymt ryk og drullu í allt að 7 vikur áður en ryksugupoki fyllist.

Fyllir á vatnstankinn

RockDock™ stöðin fyllir á vatnstankinn á ryksuguvélmenninu þegar þörf er á og eftir hver þrif. Þannig nær ryksuguvélmennið að skúra yfir stærra svæði án okkar aðkomu.

Stöðin þrífur sig sjálfkrafa

Affallsvatnið sem kemur til eftir að skúringarmoppan er hreinsuð er hreinsað úr botni stöðvarinnar og komið fyrir í sérstakan vatnstank fyrir óhreint vatn.

DuoRoller ryksugubursti

Roborock S8 ryksuguvélmennið kemur nú með tvöföldum gúmmíbursta sem tryggir betri ryksugun, minni flækjur og betri þrif. Gúmmiburstarnir virka vel hvort sem verið er að ryksuga harðviðargólf, mottur eða flísar.

6000 Pa

6000 Pa sogkraftur

Roborock S8 er með HyperForce sogkerfi sem veitir öflugan 6000 PA sogkraft. Í ryksuguvélmenninu er einnig innbyggð sérstök tækni sem skynjar mottur og teppi á gólfum. Þá lyftist moppan upp þannig að mottan eða teppið blotni ekki.

Teppi og mottur

Roborock Carpet Boost+ System®

Skref 1:

Ryksugan greinir mottur og teppi frá öðrum gólfefnum

Skref 2:

Moppan lyftist svo hún bleyti ekki motturnar.

Skref 3:

Tvöfaldir gúmmíburstar og aukinn sogkraftur skilar tandurhreinum mottum og teppum.

Blautmoppar með krafti hljóðsins

VibraRise moppukerfi

Með því að nota hljóðbylgjur nær Roborock ryksuguvélmennið að blautmoppa í burtu erfiða bletti eins og þornaðar kaffislettur, klístraðan appelsínusafapoll og fleira og skilur gólfin eftir tandurhrein og gljáandi.

3000 sinnum/mínútu Háhraða skrúbb
> 6N Moppuþrýstingur
5mm lyftir moppunni

Forðar sér frá vandræðum

Reactive 3D myndavélakerfi

Roborock S8 er með myndavélakerfi að framanverðu sem sér mögulega aðskotahluti sem gætu orðið í vegi hennar og býr til leið framhjá því svo að hún flækist ekki í t.d sokkum, snúrum eða inniskóm.

PreciSense LiDAR leiðsögn

Finnur alltaf skilvirkustu leiðina

PreciSense LiDAR leiðsögukerfið skannar og kortleggur heimilið til að finna skilvirkustu leiðina fyrir ryksuguvélmennið. Ryksuguvélmennið getur búið til allt að 4 kort fyrir heimili á nokkrum hæðum.

Snjalltenging í snjallsíma

Xiaomi home snjallforritið

Kortleggur hraðar, þrífur hraðar

Roborock S8 er allt að 6x hraðari að kortleggja rými miðað við fyrri kynslóðir og 30% hraðari að þrífa heimilið.

Stingur uppá bannsvæðum

Roborock S8 kemur með tillögur að bannsvæðum og sýndarveggjum í litlum rýmum þar sem vélmennið gæti átt í hættu að festast.

Hannaðu þína rútínu

Hægt er að búa til fjölda af mismunandi rútínum sem ryksuguvélmennið fylgir. Hægt er að stilla mismunandi vatnsmagn og sogkraft eftir rýmum og á hvaða tímum vélin fer af stað.

Þrívíddar kortlagning

Roborock S8 getur kortlagt heimilið í þrívídd fyrir enn meiri nákvæmni. Þá er líka hægt að bæta húsgögnum inn í snjallforritið til að gera hreingerninguna ennþá skilvirkar og betri.

Roborock S8 línan

S8

DuoRoller bursti

VibraRise moppukerfi

Reactive 3D leiðsögukerfi

S8 Pro Ultra

Þrífur skúringarmoppuna

Þurrkar skúringarmoppuna

Fyllir á vatnstankinn

Tæmir rykhólfið

DuoRoller bursti

VibraRise moppukerfi

Reactive 3D leiðsögukerfi