- 6.58″ Waterdrop FHD+ IPS 120Hz skjár
- 12+5GB/256GB minni
- MediaTek Dimensity 900 örgjörvi
- 9,600 mAh rafhlaða
- 66W hraðhleðsla, 15W þráðlaus hleðsla og 5W öfug hleðsla
- uSmart tengi og hitamælir
Lýsing
Ulefone Power Armor 18
og frábærri myndavél

Fjölnota hitamælir

108MP flaggskips aðalmyndavél
Ulefone Power Armor 18 er með þreföldu myndavélakerfi. Aðalmyndavél símans er 108MP þannig að myndirnar sýna öll minnstu smáatriði og nákvæma liti. Fyrir víðari skot er 8MP ofurvíðlinsa en einnig er 5MP microlens myndavél sem getur fangað örsmáa hluti í allt að 60x stækkun. Síðast en ekki síst er svo 32MP selfie myndavél, frábært fyrir myndbandssímtöl eða sjálfumyndatökur.
8MP ofurvíðlinsa
8MP víðlinsa leyfir meira af viðfangsefninu að komast inná myndina með 118.8° sjónsviði. Ofurvíðlinsuskot eru frábær fyrir landslagsmyndir, borgarmyndir og margt fleira.
Mediatek Dimensity 900
Hraðasti örgjörvi á Armor síma frá upphafi
Ulefone Armor 18 er með hraðasta örgjörva hingað til í Armor símum, það þýðir að öll vinnsla í símanum er miklu hraðari. Hvort sem það er skipting á milli forrita, vinnsla í þyngri forritum eða hvað sem er, þá er örgjörvinn tilbúinn í það. Örgjörvinn býður einnig uppá 5G farsímatengingar og sparar rafhlöðuna.
Allt að 17GB vinnsluminni
256GB geymslupláss
Ulefone Armor 18 er með 12GB af hreinu vinnsluminni. Ef að 12GB dugar ekki, þá getur síminn nýtt allt að 5GB af sýndarvinnsluminni og síminn er þá með samtals 17GB af vinnsluminni.
256GB geymslupláss er svo til að geyma myndir, myndbönd, skjöl og fleira en einnig er hægt að bæta við microSD korti allt að 2TB að stærð.
*SD kort er selt sér
Ulefone Armor 18T er með 12GB af hreinu vinnsluminni. Ef að 12GB dugar ekki, þá getur síminn nýtt allt að 5GB af sýndarvinnsluminni og síminn er þá með samtals 17GB af vinnsluminni.
256GB geymslupláss er svo til að geyma myndir, myndbönd, skjöl og fleira en einnig er hægt að bæta við microSD korti allt að 2TB að stærð.
*SD kort er selt sér
6.58" FHD+ skjár
Stór og glæsilegur 6.58″ skjár lifnar við í lófanum. Texti, myndir og öll smáatriði sjást nákvæmlega með raunverulegum litum og frábærri 2408×1080 (401PPI) upplausn.
120Hz endurnýjunartíðni
Skjárinn skrunar saumlaust í gegnum allt efni og myndbönd með 120Hz endurnýjunartíðni.


Gorilla® Glass 5
Gorilla glerið er einstaklega sterkbyggt og verndar skjáinn frá höggskemmdum og rispum. Í prófunum höndlar þetta 1.1mm þykka gler falli á hart yfirborð úr 1.5m hæð og er einstaklega rispuvarið.
IP68 og IP69K vottun
Ulefone símarnir eru sterkbyggðir símar sem þola mikið meira en hinn almenni snjallsími. Ulefone Power Armor 18 er þar engin undantekning en með IP68 og IP69K vottunum stenst síminn strangar gæðakröfur um vörn gegn vatni, ryki og drullu, háu hitastigi og fleiri krefjandi aðstæðum.
30 mín
1.5m vatnsvernd

1.5 metrar
Höggheldur

24 tímar
Rykvarin

9600mAh risastór rafhlaða
Ekki hafa neinar áhyggjur af því að síminn verði rafmagnslaus en risastór 9600mAh rafhlaða ætti að duga í allt að 4 daga í venjulegri notkun. Hvort sem þú ferð í göngu yfir hálendið, hjólaferð í gegnum skóginn eða útihlaup í náttúrunni þá fylgir síminn þér í gegnum það allt saman. Þegar kemur að því að hlaða símann þá hleðst hann að fullu á rúmlega klukkustund.
15W þráðlaus hleðsla
Styður öfuga þráðlausa hleðslu
Ulefone Power Armor 18 styður þráðlausa hleðslu allt að 15W. Síminn er einnig með öfuga þráðlausa hleðslu sem þýðir að hann getur hlaðið önnur snjalltæki sem styðja þráðlausa hleðslu með því að leggja þau á bakhlið símans. Fullkomið til að hlaða heyrnartól, snjallúr eða aðra snjallsíma sem þurfa smá auka hleðslu.


L1+L5 Dual Band GPS
Ný Dual Band GPS tækni getur tekið á móti merkjum frá bæði L1 og L5 tíðnisviði, en það stórbætir nákvæmni og samband og getur staðsett símann í rauntíma einstaklega nákvæmt. Síminn styður tengingu við GLONASS, BeiDou, Galileo, QZSS og NavlC GPS kerfin.
uSmart stækkunartengi
Uppfært tengi er á Ulefone Power Armor 18T, þannig að hægt er að tengja fjölda af aukahlutum á hlið símans. Svosem röramyndavél, stækkunargler, nætursjónsmyndavél og fleira. Einstaklega auðvelt í tengingu til að margfalda virkni símans.

Fleiri sniðugir eiginleikar
Fjölvirkt NFC
NFC tækni er einföld og þægileg leið til að greiða með símanum eða tengjast auðveldlega við önnur raftæki.
3.5mm heyrnartólatengi
Sér tengi fyrir 3.5mm heyrnartól leyfa þér að hlusta á tónlist þótt að síminn sé í hleðslu.