Search
Search

Xiaomi Smart Pet Food Feeder fóðurskammtari

29.990 kr.

  • Sjálfvirkur matarskammtari fyrir gæludýr
  • Heldur mat ferskum og þurrum
  • Heldur 1.8kg af mat
  • Hægt að tímastilla matartíma og magn
  • Hentar fyrir ketti og litla til meðalstóra hunda

Á lager

Vörunúmer: 40587

Xiaomi sjálfvirkur matarskammtari fyrir gæludýr

Gæludýrin okkar eru best í góðri rútínu, með því að tengja matarskammtarann við Xiaomi Home appið er hægt að setja upp tímaplan þar sem magn matar og á hvaða tíma maturinn dettur í skálina. Þannig geta gæludýrin alltaf fengið rétt magn af mat á réttum tíma, þó að við séum ekki heima.

Einföld og þægileg hönnun

Tækið getur geymt allt að 1.8kg af þurrmat, eða í kringum 20 daga forði. Matargeymslan heldur matnum ferskum og þurrum og þegar það er komið að matartíma þá skammtar tækið völdu magni sem að dettur í skálina fyrir neðan. Í þeim tilvikum sem að netið eða rafmagn dettur út er hægt að vera með rafhlöður í tækinu svo að matnum er alltaf skammtað. 

Tenging við snjallheimilið

Með því að para matarskammtarann við Xiaomi Home appið er hægt að fá áminningar þegar það er komið að því að fylla á matinn. Í gegnum appið er líka hægt að setja tímaplan eða setja handvirkt mat í skálina, jafnvel þótt við séum ekki heima.

Bara það besta fyrir gæludýrin

Vörukynningunni er í raun formlega lokið núna, en við gátum ekki fengið nóg af þessum krúttlegu myndum þannig við vildum að þið fengjuð að njóta þeirra líka. 

Previous slide
Next slide